Starfsreglur Landsmenntar um einstaklingsstyrki
Fræðslusjóður SA og verkafólks á landsbyggðinni úthlutar á samningstímanum einstaklingsstyrkjum til félagsmanna þeirra stéttarfélaga sem eru aðilar að Starfsgreinasambandi Íslands (SGS) þó ekki þeirra aðildarfélaga SGS sem mynda Flóabandalagið.
Hvaða skilyrði þarf félagsmaður að uppfylla til að eiga rétt á styrk til starfsmenntunar hjá Landsmennt, starfsmenntun Samtaka atvinnulífsins og verkafólks á landsbyggðinni?
- Félagsmaður sem unnið hefur fullt starf í a.m.k. 6 mánuði af síðustu 12 og greitt til aðildarfélags Landsmenntar á þeim tíma á rétt á stuðningi til starfsnáms. Greitt er hlutfallslega fyrir fólk í hlutastörfum.
- Við ákvörðun upphæðar er miðað við greidd félagsgjöld síðustu 12 mánaða. Félagsgjald af lágmarkslaunum í 100% starfi eða meira gefur fulla styrkupphæð.
- Fylla þarf út umsóknareyðublað og skila ásamt reikningi/kvittun til viðkomandi stéttarfélags. Umsókn þarf að berast viðkomandi stéttarfélagi innan 12 mánaða frá því að námi/námskeiði lauk.
- Áunnin réttindi félagsmanna innan Landsmenntar, Sjómenntar, Starfsafls, Starfsmenntasjóðs verslunar-og skrifstofufólks, Ríkismenntar SGS og Sveitamenntar SGS og LN haldast óbreytt þrátt fyrir flutning á milli aðildarfélaga sjóðanna.
-
Sá sem hverfa þarf tímabundið af vinnumarkaði af ástæðum sem valda því að ekki ber að skila tryggingagjaldi af launum hans, heldur í allt að tuttugu og fjóra mánuði þeim rétti til starfsmenntunarstyrks sem hann hafði áunnið sér hjá sjóðnum. Að tuttugu og fjórum mánuðum liðnum, frá því hann hvarf af vinnumarkaði, fellur réttur hans að fullu niður.
-
Foreldrar í fæðingar-eða foreldraorlofi geta nýtt sér áunnin rétt skv. 1. gr. ef þeir velja að greiða stéttarfélagsgjöld á meðan á orlofi stendur.
-
Félagsmenn í atvinnuleit halda áunnum rétti sínum eins og hann var við starfslok ef þeir velja að greiða stéttarfélagsgjöld af atvinnuleysisbótum.
Hve mikið er greitt ?
Greitt er að hámarki kr. 60.000.- á ári f.o.m. 1. júlí 2008. Miða skal við almanaksárið. Aldrei er þó greitt meira en sem nemur 75% af námskostnaði.
Um styrk vegna náms til aukinna ökuréttinda.
Félagsmenn eiga rétt á styrk vegna meiraprófs að upphæð 100.000.- Hver einstaklingur getur einungis fengið slíkan styrk einu sinni. Ekki skiptir máli hvort allir fjórir þættir aukinna ökuréttinda séu teknir.
Frístunda/tómstundanámskeið
Landsmennt veitir styrki vegna tómstundanámskeiða ýmiskonar og er endurgreiðsla vegna þierra 50% af kostnaði en aldrei hærri en kr. 18.000.- á ári og dregst jafnframt af heildarupphæð einstaklingsstyrks þess árs.
Styrkir til kaupa á hjálpartækjum fyrir lestrar-og ritstuðning.
Félagsmenn sem eru lesblindir eða eiga við lestrar-og ritörðugleika að stríða geta sótt um allt að 75% styrk vegna kaupa á hjálpartækjum ætluðum til stuðnings við lestur og skrift. Heildarstyrkur miðast við hámarksupphæð skv. almennum reglum sjóðsins eða kr. 60.000.-
Styrkir vegna íslenskunáms
Félagsmenn sem hafa annað móðurmál en íslensku geta sótt um allt að 75% styrk vegna íslenskunáms eftir mánaðar félagsaðild í aðildarfélagi Landsmenntar.
Áfrýjunarréttur
Ef félagsmaður telur sig eiga rétt á styrki til starfsmenntunar, en er hafnað um styrk af viðkomandi verkalýðsfélagi, þá getur félagsmaður vísað umsókn sinni til verkefnisstjórnar Landsmenntar til afgreiðslu.
Breyting á starfsreglum
Reglur þessar geta tekið breytingum samkvæmt ákvörðun stjórnar hverju sinni og var síðast breytt 1. janúar 2009 en þá var ákveðið að greiða út styrki um leið og viðkomandi félagsmaður legði inn umsókn ásamt reikningi/kvittun vegna náms/námskeiða (gr. 3)